|

Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Vesturlandi (sfvesturland)
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Vesturlandi er staðsett við Bjarnabraut 8 í Borgarnesi þar sem aðalskrifstofa þess er. Svæðisskrifstofan sér um þjónustu og allt er varðar málefni fatlaðra um allt Vesturland eða frá botni Hvalfjarðar til botns Gilsfjarðar. Þó svo aðalskrifstofan sé staðsett í Borgarnesi eru starfsstöðvar víða um Vesturland eins og á Akranesi og á Snæfellsnesi.
Svæðisskrifstofan leggur mikla áherslu á góða samvinnu við sveitafélög, frjáls félagasamtök og aðra sem vilja leggja henni lið til þess að fatlað fólk og fjölskyldur þeirra geti notið þjónustu í sinni heimabyggð. Svæðisskrifstofan rekur tvö sambýli á Akranesi og eitt í Borgarnesi. Svæðisskrifstofan rekur og kemur að vernduðum vinnustöðum á Akranesi og í Borgarnesi. Einnig sér Svæðisskrifstofan um hæfingu sem er í húsnæði fjöliðjunnar á Akranesi. Svæðisskrifstofan veitir frekari liðveislu um allt Vesturland en helstu starfsstöðvar liðveislunnar eru í Borgarnesi og á Akranesi. Svæðisskrifstofan sér um ráðgjafaþjónustu frá Akranesi, Borgarnesi og Stykkishólmi um allt Vesturland og sér um rekstur í samstarfi við þroskahjálp á skammtímavistun fyrir börn í Holti og á Gufuskálum. Einnig sér Svæðisskrifstofan um að útvega stuðningsfjölskyldur fyrir fötluð börn á Vesturlandi.
Starfsfólk Svæðisskrifstofunnar er um 90 en stöðugildi eru um 55. Það eru 173 einstaklingar í þjónustu hjá Svæðisskrifstofunni og þar af eru um 90 börn.
|