Vantar þig
vinnu/sumarvinnu?
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Vesturlandi er að leita að hressu og góðu fólki sem er tilbúið í sumarvinnu eða taka að sér að vinna nokkrar auka vaktir. Við leitum að fólki bæði á Akranesi og í Borgarnesi.
Starfið felst í að aðstoða fólk með fötlun við daglegt líf og tómstundir.
Laun samkvæmt kjarasamningi SFR.
Áhugasömum er bent á að smella á "Almenn umsókn" og opna efsta word-skjalið. Fyllið út og sendið á Svæðisskrifstofuna að Bjarnarbraut 8, 310 Borgarnes.
|
