Nýjar fréttir

 

Byggjum betra samfélag

- valdefling í verki -

Málþing á vegum Hlutverkaseturs, Rauða kross Íslands,

Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Vesturlandi

og Félags- og tryggingamálaráðuneytisins

Haldið í Sögumiðstöðinni í Grundarfirði miðvikudaginn 28. apríl 2010

Málþingið á erindi við alla, fagfólk í heilbrigðis- og félagsþjónustu, sveitarstjórnarmenn,

fólk úr atvinnulífinu, skólafólk og almenna borgara

Geðheilsa er víðtækt hugtak og hún skiptir sköpum í samfélagi manna. Hvað styrkir geðheilsuna?

Hver er munurinn á geðsjúkum, geðfötluðum og geðheilbrigðum? Hversu öðruvísi er öðruvísi?

 byggjum_betra_samflag_grundarfiri_28_apr.pdf

__________________________________________________________________________

 

        Námskeið um sálrænan stuðning

 

 

Svæðisskriftofa málefna fatlaðra á Vesturlandi ætlar að bjóða

starfsfólki sínu á námskeið í sálrænum stuðningi

 

Námskeiðið verður haldið fimmtudaginn 18. mars kl. 16 - 20

í sal Svæðisskrifstofunar að Bjarnarbraut 8.

 

Fyrirlesari er Margrét Magnúsdóttir leiðbeinadi hjá Rauða krossinum.

 

Sálrænn stuðningur I

Námskeiðið er fyrir þá sem vilja rifja upp eða öðlast færni og þekkingu

í sálrænum stuðningi. Námskeiðið er gagnlegt fyrir almenning,

starfsmannahópa, starfsfólk með mannaforráð og

sjálfboðaliða Rauða kross Íslands.

 

 

Markmið

Að þátttakendur kynnist gildi sálræns stuðnings í

aðstæðum sem geta valdið áföllum.

Viðfangsefni

Hvað er áfall?
Áhrif alvarlegra atvika á einstaklinginn
Sálræn skyndihjálp
Sjálfsrýni – hvað get ég gert?
Stuðningur við úrvinnslu alvarlegs atviks
Munur á alvarlegum atvikum og glímunni við lífið
Mismunandi tegundir áfalla
Áhrif streitu á einstaklinginn
Sorg og sorgarferlið

Fræðsluefni

Sálræn skyndihjálp. Þegar lífið er erfitt.

Sálrænn stuðningur – viðbrögð og bjargir

Útgefandi fræðsluefnis: Rauði kross Íslands.

Viðurkenning

Eftir að hafa setið námskeiðið fá þátttakendur

viðurkenningu frá Rauða krossi Íslands og

heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu.

Mælt er með endurmenntun annað hvert ár.

 

Námskeiðið er starfsfólki að kostnaðarlausu

og ekki er greitt fyrir þátttöku.

 

Takmarkaður fjöldi er á námskeiðið þannig að

fyrsti koma fyrstir fá.

Skráing er hjá Huldu, netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

eða í síma 893 9280.

 

Fræðslunefnd Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra Vesturlandi

_____________________________________________________________________________________________________

 

        Námskeið um Andlega sjálfsvörn

                                                      8.apríl 2010

  

 

Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Vesturlandi ætlar að bjóða

starfsfólki sínu á fyrirlestur um Andlega sjálfsvörn 8. apríl n.k.

 

Fyrirlesari er Sigursteinn Másson, formaður Geðhjálpar.

 

Fyrirlesturinn er 40 mínútna langur þar sem farið er yfir gagnlegar leiðir

 til að styrkja geðheilsu, forvarnir gegn geðheilsubresti og

grundvallaratriði í bataferli eftir áföll.
Áhersla lögð á tengsl andlegrar og líkamlegrar heilsu og einfaldar

aðferðir til að efla hvort tveggja.
Umræður, spurningar og svör í 20 mínútur.

Fyrirlesturinn verður haldinn bæði í Borgarnesi og á Akranesi.

 

Borgarnes kl. 14-15 (nánari staðsetnig auglýst síðar)

 

Akranes kl. 16:30-17:30 í Fjöliðjunni Akranesi

 

Námskeiðið er starfsfólki að kostnaðarlausu

og ekki er greitt fyrir þátttöku .

 

Skráing er hjá Huldu, netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

eða í síma 893 9280 og þurfa skráningar að berast fyrir 25. Mars n.k.

 

Fræðslunefnd Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra Vesturlandi

___________________________________________________________________________

 

 

Jólastemming í Búkollu

n176817666020_3787.jpg

 

Laugardag, 12. Des. Verður jólastemming í Búkollu

fjöliðjan mun vera með bás og selja handverk.

Boðið verður upp á léttar veitingar undir jólalögum.

Opið verður frá kl: 12:00-15:00

Vonumst til að sjá sem flesta!!!

 

_________________________________________________________________________

 

1024499.jpg

________________________________________________________________________________

 
<< Byrja < Fyrra 1 2 3 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 3